miðvikudagur, 1. apríl 2009

Skilaboð frá leikskólanemanum!

Ég er veik og mér var illt í hálsinum. En einu sinni þá var mér svo illt, ekki í gær heldur hinn, á föstudegi, var ég alveg hræðilega veik. Ég svaf næstum því allan daginn. Og næsta dag var ég aðeins betri og síðan var ég aftur veik, en það var í gær. Og þá var mér ekki eins illt í hálsinum, þá var mér illt í hausnum. Og þá lá ég í sófanum þó að Jói kom úr skólanum. En í dag er ég aðeins betri en mér var kalt.




Birna Lind heiti ég.

2 ummæli:

  1. Stórt knús á stóru veiku stelpuna. Vonum að þér batni fjlótt!
    Grafarholtið!

    SvaraEyða